Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

mánudagur, mars 07, 2005

Mjög fyndin helgi!!

hæ hæ.... vá þvílík helgi

Fimm: út að borða með 10 stelpum úr skólanum á Carusó...alveg geggjað svo á Hverfis og vegó og svo bíltúr í 10-11 að kaupa kíló af nammi og svo í Hafnafjörðin....það er svona að fara edrú á djammið og enda á að vera driverinn....en allt í góðu alveg helvíti skemmtilegt kvöld

Föstudagur: fór á dansnámskeiðið hjá Darrin Henson sem er FALLEGASTI SVARTI KARLMAÐUR sem ég hef séð.....(fyrir utan þig Goggi minn) það var ógeðslega gaman....en vá hvað ég suckaði feitt...gat ekkert dansað og skammaðist mín ekkert smá fyrir það þar sem Darrin fór að taka mig fyrir og sýna mér allt sér og mér leið GEÐVEIKT LÉLEG...humm fékk útskýringu á því dagin eftir!!
Eftir dansinn fór ég að vinna í veislu hjá honum Gunna mínum.....hann var 40 ára og hann bauð 200 manns....jamm svona er að vera vinsæll og ríkur!!! ´200 manns og FRÍTT Á BARNUM.... alveg helvíti mikið að gera... var búin kl 5 og var þá ekki búin að sofa í 2 sólahringa....ég veit ég er bara sæt :o)


Laugardagur: Dans hjá Darrin kl 14-16 og nú var mín sko aldeilis að massa þetta, meira að segja svo mikið að Darrin kom til mín eftir tímann og kyssti mig beint á munninn og gaf mér stæðsta knús í heimi....hummm bjóst ekki alveg við þessu.... heyrðu haldiði að gaurinn hafi ekki bara beðið um númerið mitt og boðið mér út þarna um kvöldið.......hann var sem sagt að reyna við mig... og reyndi meira að segja að sweet talk-a mig með því að segja mér að ég dansaði vel og væri falleg.........ég bara starði á hann alveg dolfallinn....JÁ..........!!!! HVAÐ ER MÁLIÐ!!

Allavega fór svo út að borað með Dreifurunum mínum því ARNA var að útskrifast...þessi elska... við fórum á Gallileó í geggjaðan mat svo á Í svörtum fötum á Gauknum og svo á Hressó að dansa... dansaði þvílíkt þetta kvöld.... endaði svo á að sat á téttinu við 2 kokka og var að reyna dobbla annan þeirra til að koma vinna hjá mér í sumar á meðan hann reyndi að dobbla mig að koma heim með sér með því að lemja mig..... helvíti fyndið kind of had to be there kind of thing!! En allavega mér tókst ekki að fá hann í vinnu og honum tókst ekki til að fá mig með sér heim og allir enduðu ósáttir heheheheh fyndið kvöld


TAKK ALLIR SEM ÉG HITTI UM HELGINA FYRIR GEGGJAÐA HELGI.......

þetta blogg er í boði þeirra sem ég hitti ekki um helgina


kv. Dillibossi Knúdsen

2 Comments:

  • At 10:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá geggjuð helgi hjá þér sæta, og þetta blogg var semsagt ekki í boði mín ;) halldóra

     
  • At 1:05 f.h., Blogger Dillibossi Knúdsen said…

    heeheh nei sorry sæta gleymdi að segja að´þú hafir komið í heimsókn og ég saumað mér pils og betrumbætt bol....humm ég er svo mikill gestgjafi...gaf þér ekki einu sinni vatn að drekka :o) en ég þakkaði þér samt fyrir helgina..

     

Skrifa ummæli

<< Home