Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

föstudagur, mars 25, 2005

Ein utan við sig.......

vá hvað ég hef verið utan við mig upp á síðkastið....uffff allavega það er orðið daglegt brauð að ég tíni gleraugunum mínu og ekkert algengara en að stelpurnar sjái mig labba um allan skólan og á milli bygginga að leita af þeim...en um daginn þá gekk ég fram af sjálfum mér og týndi þeim alveg...fór í sjónmælingu og keypti mér ný....en auðvita fann ég gömlu gleraugun aftur eftir að ég keypti mér ný!!
Svo gleymdi ég kortinu mínu í búð.... og loks öllu veskinu mínu...en fékk þetta aftur sem betur fer...hleðslutækið mitt fyrir tölvuna bilaði og ég fékk í nýtt í láni frá Tæknivali... gaurinn hélt 10 mín ræðu yfir því hvað ég þyrfti að borga mikinn pening ef ég myndi týna því...og það fyrsta sem ég geri er að gleyma því upp í Odda.... fékk það samt aftru..... en HALLÓ!!
Svo fór ég í ræktina og gleymdi að koma með auka sokka, íþróttatopp og nærbuxur..... svo núna síðast þá gleymdi ég að kaupa mér páskaegg........hvað er málið ....allt í einni og sömu vikunni ég þarf að muna eftir að kaupa mér pákaegg á mogun annars fer ég í hundana...(mar´fer í jólaköttin svo mar´hlítur að geta farið í Páskahundana.....)!!!

En jæja ætla að fara gera eitthvað...djamm í kvöld..... vinna á morgun

Gleðilega páska

þetta blogg er í boði Limox Chardonney...uuuummmmm!!!!

Kv. Dillibossi Knúdsen

4 Comments:

  • At 8:31 e.h., Blogger Fanny said…

    Hvað er málið með þig. Líst ekkert á þetta. Þetta hlýtur að vera vegna ótrúlega lítillar áfengisnotkunar undanfarið. Taktu þig á stelpa. Mundu eftir víninu. Reyndar hefurðu aldrei gleymt því svo það er ennþá von;)

     
  • At 10:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá...næstum verri en ég suma daga.
    Og ég skil alveg hvernig þér líður ;)
    Ég held að þú farir samt ekkert í hundana við að gleima að kaupa páska egg!!!
    Kk Arna Guðný

     
  • At 10:22 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég held áfram að skemmta ömmu þinni með því að lesa bloggið þitt fyrir hana. Hún hefur áhyggjur af því hvernig þú verður þegar þú ert orðin áttræð !

     
  • At 8:39 f.h., Blogger Doppa said…

    Haha... fara í páskahundinn... góður þessi. En þú ert alveg ótrúleg pæja með nýju gleraugun, ekkert smá flott!!

     

Skrifa ummæli

<< Home