Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

miðvikudagur, mars 09, 2005

Svefnleysi

já gott fólk ég þjáist af svefnleysi.... og veit ekki hvað ég á að gera.....ég er drullu þreytt en einfaldlega sofan ekki...Amma mælti með einu sérrý glasi fyrir svefninn...en mitt markmið er ekki að verða alkóhólisti fyrir 25 ára......
Mamma sagði mér að taka 1/2 panódíl...en það vindur upp á sig og eftir mánuð yrði þessi 1/2 tafla orðin að 1 og mánuðu seinna að 2 og svo koll af kolli þangað til ég er orðin forfallinn pillusjúklingur og þarf 5 til að sofna og 7 til þess að vakan..... og þá enda ég með því að finnast dauð í eigin ælu upp í rúmi einn daginn....Maralyn Monroe all over again.....hehhe
Svo er það hin amman mín sem sagði mér að flóa mjólk það myndi róa svo mikið magan...en humm mjólk hefur hingað til æst upp á mér magan og ekki nenni ég að æla á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa það fer svo illa með vélindað.....og tennurnar.......

.....svo að já ég er eiginlega bara alveg ráðalaus....er samt að pæla í því hvort ég eigi ekki bara að mæta í ræktina á hverjum morgni kl 6:00 í staðin fyrir að fara kl 19:30 því þá er ég svo full af orku á kvöldin að ég sofna aldrei...... er einhver til í að koma memm.... Óli Addi, Arnar, Ólafur... eða hvað svo sem þú kallar þig í dag............... :o) hehe átti ekki að vera svo duglegur í ræktinni þessa önnina??
humm en allar hugmyndir eru vel þegnar og ekki hika við að láta mig prufa allan andskotan... er kominn með nóg af svefnlausum nóttum...svo verður mar´líka svo ljótur þegar mar´sefur ekki.

þetta blogg er í boði Eyþórs á Sigga Hall sem var að bjóða mér í 2gja rétta ,,Keppnismat" rétt áðan... geggjað góður!!!

kv. Dillibossi "svefnlausi" Knúdsen

5 Comments:

  • At 8:14 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Tað er nátlega bara þetta venjulega, drekka ekki koffíndrykki, lesa bók fyrir svefninn ofl. Annars get ég nú ekki mikið ráðlagt þér við svefnleysi, sofna alltaf sjálf um leið og ég leggst á koddann!
    En ég er til í ræktina kl. 6 ef að ég þarf að gefa upp fótboltaferilinn, haltra nefnilega um núna :) kv Heiða

     
  • At 3:22 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Kynlíf hefur oft gefist vel :)

     
  • At 9:33 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Mæli med Valerina Natt fæst i apótekinu bæði sem te og töflur. Er ekki vanabindandi einungis róandi :c)

     
  • At 2:14 e.h., Blogger Dillibossi Knúdsen said…

    Takk kærlega fyrir öll þessi ráð held ég prufi þau bara öll í einu.. studni róandi kynlíf með bók í annarri og te í hinni...hehe :o)

     
  • At 6:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Jú, rétt er það Díana, duglegur í ræktinni. Skólinn hefur hins vegar gengið fyrir og ræktin því aðeins dottið út :/
    Annars kýs ég frekar Ólafur eða Arnar eða bæði... ekki Óli Addi!! :)

     

Skrifa ummæli

<< Home