Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

föstudagur, maí 13, 2005

VÆNDI!!

Já gott fólk það er sko í alvöru vændi á Íslandi og ekki bara af einhverjum útlendingum... ooohhh nei ég var að koma úr vinnunni, sem er nú ekki frásögu færandi, nema hvað að það var þessi gella þarna sem kom þangað inn gagngert til þess að selja sig... hún var 20 ára, ljóshærð, meðal há, sæt og í aaaaaalllllllllttttttt of stuttu pilsi... svo labbaði hún bara á milli og téttaði við kallana.. á endanum fór hún með 2 út og við sáum þá gefa henni peninga... ég heyrði hana líka bjóða sig einum sem var við barinn en hann snéri sér nú bara frá,...og við erum ekki að tala um einhverja útúr fulla og dópaða gellu ... heldur bara þessa venjulegu everyday gellu....ógeðslegt... ooooooojjjjjj þetta var svo ógeðslegt.... og kallarnir sem fóru út með henni þeir voru svo fullir og ógeðslegir og viðbjóðslegir og feitir (sérstaklega annar þeirra).. arggggg marður verður svo reiður á að horfa á svona,... ég bað svo 2 stelður sem voru þarna inni að tékka á þessu.... því það voru allir að fylgjast með okkur leist ekkert á blikuna...!!

Já gott fólk svona er Ísland í dag....ætli neysluhyggjan í okkur sé farinn að leiða okkur út í vændi, eða er þetta bara partur af lélegri sjálfsmynd??

Bara smá svona pæling rétt fyrir svefninn

kv. Dillibossi Knúdsen, sem er búin í prófum og gæti ekki verið ánægðari :o)

þetta blogg er í boði mín.... og það kostar ekkert!!!

3 Comments:

  • At 3:15 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með að vera búin með prófin og takk fyrir þetta ókeypis blogg ;)

     
  • At 8:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Loksins fær maður e-ð ókeypis :) Og já aftur til hamingju að vera búin í prófunum! Hmm...ég hef reyndar íhugað að hella mér út í vændi þegar ég var í háskólanum, ég meina þá fengi maður fullt af kynlífi og engar peningaáhyggjur ;)

     
  • At 1:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já, til hamingju með að vera búin með prófin, enginn smá sigur það. En ég bara skil ekki þennan teprugang þinn í sambandi við kynlífssölu. Það er svo lang því frá að allar þær sem selja kynlíf séu að því í nauðum svipað og það eru sem betur fer ekki allir nauðugir að vinna með fötluðum eða í Hagkaup eða í Laugum, eða eru í námi í Háskóla Íslands. Það er jafnfáránlegt, bara á mismunandi hátt, að leggja á sig að læra eins og geðsjúklingur undir 6 próf í HÍ og að selja kynlíf í 30 mínútur og fá 30 þúsund fyrir það. Okey, til lengri tíma þá gefa prófin vonandi betri afrakstur en ekki í öllum tilfellum. Nú er ég mikil áhugamanneskja um kynlífsiðkanir og sé ekkert því til fyrirstöðu að selja kynlíf geri fólk það að fúsum og frjálsum vilja, þetta er eins og hvert annað sport og lærdómur. Og hana nú.

     

Skrifa ummæli

<< Home