Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Markaðsfræði!!

Ég er að fara læra meiri markaðsetningu hérna í háskólanum en ákvað að kynna mér málið!!!!

Skýring á "Markaðssetningu.
"Fólk biður oft um útskýringu á "markaðssetningu."
Jæja hér kemur hún:

*Þú ert kona og sérð flottann mann í partýi. Þú ferð upp að honum ogsegir, Ég er frábær í rúminu." Þetta er bein markaðssetning.
*Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottann mann. Einn af vinum þínum fer upp að honum, bendir á þig og segir, "hún er frábær í rúminu."Þetta er auglýsing.
*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Þú labbar upp að honum, færð símanúmerið hans, hringir í hann daginn eftir og segir, "Hæ, ég er frábær í rúminu." Þetta er símamarkaðsetning.
*Þú ert í partýi og sérð flottann mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp að honum og réttir honum glasið þitt og segir við hann, "Fyrirgefðu, má ég?" Lagar bindið hans, nuddar brjóstunum létt utan í hann og segir, "Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu." Þetta eru almannatengsl.
*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann labbar upp að þér og segir,"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu." Þetta er þekkt vörumerki.
*Þú ert í partýi og sérð flottann mann. Hann langar í þig en þú færð hann til að fara heim með vinkonu þinni. Þetta er söluorðspor.
*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig. Þetta er tækniaðstoð.
*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgvötar að það gætu verið flottir menn í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá. Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og öskrar úr þér lungun, "Ég er frábær í rúminu." Þetta er ruslpóstur.
*Þú ert í partýi, þessi vel byggði massaði maður kemur til þín, káfar ábrjóstunum á þér og klípur í rassinn. Þetta er Arnold Schwarzenegger.
*Þér finnst það gott, en 20 árum seinna ákveður lögfræðingurinn þinn að þetta hafi verið kynferðisleg áreitni og undirbýr lögsókn. Þetta eru Bandaríkin.


Hvað segiði á ég ekki bara að snúa mér að einhverju öðru??

kv. Dillibossi Knúsen, non relatet to Villi og Ósvaldur Knudsen en þetta blogg er samt í boði þeirra .......heheheh :o)

5 Comments:

  • At 2:26 e.h., Blogger Doppa said…

    Haha... frábær útskýring á markaðsfræði. Kom sér vel fyrir mig að fá skilgreiningu á þessum hugtökum og það er gott að fá það á máli sem ég skil!!
    Gott mál, ég held að þú sért alveg á réttum stað í þessu...
    Kveðja Doppan

     
  • At 3:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hehe..þetta er bara snilld. Maður ætti nú að geta lært eitthvað að þessu

     
  • At 10:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Snúa þér að öðru? Nei, mér sýnist þú vera alveg á réttri hillu í markaðssetningu :)

     
  • At 8:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já ef að markaðsfræði væri nú svona skemmtileg ;) kv heiða

     
  • At 11:14 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er að hugsa um að skella mér í markaðsfræði...
    Þetta virðist vera mjög spennandi...
    Kveðja
    Sigga Rósa

     

Skrifa ummæli

<< Home