Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

föstudagur, maí 27, 2005

Jájájá

jæja kl orðin 3 á fimmtudagskvöldi og minns ennþá vakandi... ussss en ekki segja neinum.... en málið er að ég varð að klára að horfa á allt O.C. seríu 2 áður en ég færi austur..lofaði litlu frænku minni því... humm hún er 18 ára...hjá sumum telst það ekki lítið... en vá hvað þetta er klikkuð sería.. mæli með að allir horfi á hana!!

Ég er eiginlega búin að lofa allt of miklu áður en ég ferð austur.. allt of miklu til allt of margra.. svo eru mamma og pabbi að koma suður um helgina að hitta arkítektinn... heheh minns fékk það í gegn að það yrði gert ráð fyrir mínum í nýja húsinu :o) ekki það að ég sé að fara flytja heim eða eitthvað...en ég meina hvað með það þegar ég verð fráskilinn með 2 börn, kominn með nýjan sem á 4... heheh hvar eigum við að sofa... jejeje like thats gona happen.. Ég með 2 börn... not in this livetime ha Heiða :o)

En vá hvað þessi sumarbyrjun er einhvernveginn svo allt öðruvísi en síðasta...
Heiða orðin fullorðin og orðin Deildarstjóri hjá Útlendingastofnun, ég er svo stolt af þessari elsku og hún er búin að lofa að framvegis hleypi hún aðeins sætu strákunum inn í landið!!
Ólafur orðin lögga... já hefði aldrei gískað á að hann hefði áhuga á því... hélt að ég væri löggan í þessum hóp!!
Sævar fer eitthvað út í heim.. veit ekki hvert... að vinna sem markaðs eitthvað.... ég ætti virkilega að fá allar staðreyndir á hreint áður en ég skrifa..... en vá þvílíkt tækifæri!!
Arna kominn með samning hjá Dekurhorninu og styttist því í Sveinsprófið hennar... uuuuhhh finalý Snyrtifræðingur!!
Doppa ætlar að ganga um götur Reykjavíkuborgar og auglýsa Frið á jörðu og mannréttindi... og acctualý get paid for it... jebbs drauma djobbið... hún á eftir að rökræða af sér rassgatið þessi elska!!
Fanný er farinn á Norrænu... doing god knows what!!
Barði á sjó... ekkert nýtt þar... en heyrðist á honum að það væri eitthvað nýtt í uppsiglingu!!
Bibban og Signý einnig komnar með SOLID vinnu á Útlendigastofnunina.. gott að eiga góða að.. ha??
Guðjón kominn með nýja íbúð og fluttur inn með konunni og happý as can be!!

Jebbs svo er það "Lil´Miss ME"... fer austur í sumar í stað norður eins og í fyrra.. og nú er það Eddan í stað Fosshótela.. humm allt að gerast...!!

Jebbs þá er allt Dreifaragengið upptalið.. og hlakka mikið til að hitta ykkur öll í haust... það verður sko skemmtileg pottaferð farinn!!

bið að heilsa, gleðulegt sumar

kv. Dillibossi Knúdsen.... on fire!!

Þetta blog er í boði skemmtilegra, en óvæntra breytinga!!

4 Comments:

  • At 8:29 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já skemmtilega sett upp hjá þér! Fínt að fá svona yfirlit yfir stóðhestana úr sveitinni ;) Greinilega margt skrítið og skemmtilegt að gerast í sumar og gaman verður að rifja það upp í sumarbústaðarferðinni í haust :)

     
  • At 12:30 e.h., Blogger Doppa said…

    Já alveg hreint magnaður hópur þarna á ferð.... þetta sumar verður mjög eftirminnilegt.... og ég er strax farin að hlakka til dreifarasumarbústaðaferðarinnar í haust!!!!

     
  • At 1:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Ég á pottþétt eftir að sakna þín!!
    Sumarið rétt að byrja og get ekki beðið!!

     
  • At 10:59 e.h., Blogger Sævar Jökull Solheim said…

    já... það verður seint sagt að það sé tilbreytingaleysi hjá genginu!
    Pottaferðin á náttla eftir að rúla! vonandi að maður verði kominn heim :s

     

Skrifa ummæli

<< Home