Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

föstudagur, júní 03, 2005

Kominn í sveitasæluna

Má samt alveg deila um það hversu mikil sæla það er... nei ég segi bara svona!!
Er annars bara ánægð með það... er búin að selja út 6 herbergi í 4 daga áður en ég opna... það hlítur bara að vera snilldar sölumennska... heheh :o)

Finnst annars voða skrítið að vera kominn aftur... hef þannig séð ekki búið hér í Nesó síðan 2000, en vann samt eitt sumar 2002 eftir að ég fluttu heim frá Sviss. Það var líka svo allt öðruvísi tilfinning að fara frá Rvk núna og í fyrra þegar ég fór á Laugar. Þá var ég að fara búa með 20 öðrum og djamma og fara inn á Húsavík og Akureyri og skemmta mér... núna er ég að fara búa með EINARI í íbúð á 3ju hæðinni á hótelinu og ekkert að djamma...enda pakkaði ég í samræmi við það... baisiklý græna drakktin sem ég á að vera í í allt sumar, sem by the way er með allt of suttum ermum... :o( sokkabuxur og nærföt... hummm þarf ekkert margar töskur undir þetta... annars þá erum ég og Sindri búin að ákveða "HITTING" annað kveld í Listigarðinum með bekkjarfélögum vegna þess hvað það var ógeðslega gaman í fyrra... það verður bara gaman..!!

Jæja gott fólk held ég hafi ekkert meira að skrifa í bili... en minnið mig endilega á að blogga um brjóst.. þarf nebblega að segja ykkur svolítið skemmtilegt um brjóst en gef mér aldrei tíma til þess... bið að heilsa í bili

kv. Dillibossi

Þetta blogg er í boði þeirra sem ætla að koma á Sjómannadagshelgina hér fyrir austan...

2 Comments:

  • At 10:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Fyrirgefðu skilurðu, er þetta stolið, skilurðu, það er ég sem segi kött. Kemur samt í gufuna skiluru lau kl 2 am skiluru, gegt stu skiluru

    kött

     
  • At 2:08 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Bara minna þig á að blogga um brjóst!

     

Skrifa ummæli

<< Home