Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

miðvikudagur, desember 07, 2005

Hvað er málið með yfirborðskennd??

Ég við byrja á því að biðja æsta aðdáendur bossans innilegrar afsökunnar á því að hafa ekki bloggar í langan tíma og þakka þolinmæðina

En hvað er málið með... í dag er YFIRBORÐSKENND.

Ég þoli ekki yfirborðskennd og yfirborðskennt fólk..og ég fer alltaf jafn mikið í taugarnar á sjálfum mér þegar ég dett inn í það að heilsa fólki sem ég þoli ekki á yfiborðslegu nótunum lengst upp á háa C ... sem hljómar einhvernveginn svona: NEIHHHH´HHHHHHÆÆÆÆÆ.......HVA´SEEEGGIRU!!!
og hin manneskjan svarar: BARA FÍÍÍÍNNNNTTTT..... EN ÞÚÚ???

..og svo eftir stutt innantómt tjatt og rugl um EKKERT þá kveðjumst við á jafn yfirborðskenndum nótum.... OOOOKKKKK GAMAN A´SJÁ ÞIG...HEYRUMST OOOOKKKKK BBBBBBÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ................

ARRRRGGGGG afhverju gerir maður þetta....!! Svo snúa þessir tveir aðilar sér við og byrja strax að stinga hvern annan í bakið...afhverju???

Það er annað að hitta manneskju sem manni líkar vel við og heilsar með INNILEGUR HÆÆÆÆÆ-I og talar svo saman um eitthvað sem skiptir máli og kveðjast á jafn innilegum nótum um lof um að heyrast oftar, því þá er fólk að sleppa öllum tilgerðarlegum HÆ-jum og BÆ-jum sem eftir á að hyggja hljóma bara kjánalega... ég meina báðir aðilar vita það alveg að þeir eru ekkert allt of hrifnir af hvor öðrum og að þeir þurfa ekkert að vera að þykkjast með einhverjum uppgjörðarinnilegheitum (og þetta er orð...víst mamma segir það)!!

Í framtíðinni ætla ég ekki að fara leiðast út í eitthver yfirborðskennd HÆ og BÆ heldur halda mig það að vera ekki að Feika neitt...ég meina maður fær náttlega ekkert ef maður feikar það alltaf....eða hvað??


Bið svo innilega að heilsa ykkur öllum (engin yfirborðskennd þar á ferð)

Dillibossi Knúdsen

Þetta bogg er í boði kaffi... hvar væri ég án þess??

6 Comments:

  • At 9:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Gaman að sjá að þú ert á lífi! Þú getur kannski ekki alveg sleppt því að nota yfirborðskenndina...hvað með vinnurnar sem þú ert í? ;) Þú neyðist til að heilsa öllum þar, en það er kannski líka leyfilegur staður til að vera yfirborðskenndur!

     
  • At 12:13 e.h., Blogger Dillibossi Knúdsen said…

    Já en þar er ég samt ekki alveg Hæææææææ........ ég er innileg en smat held mínum fagmannlega distance.. það er munurinn....!!

     
  • At 6:09 e.h., Blogger Fanny said…

    Ok... rétt, móttekið og ég get ekki annað en hlegið inn í mér núna, Sé þig svo fyrir mér hitta einhverjar gellu og vera svona og svo gretta þig þegar þú labbar í burtu.......
    Muhahahahahaha

    Eins gott að þú notir handaband næst þegar þú hittir mig ungfrú góð.

     
  • At 1:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hó.

    Ok ég verð að monta mig pínu!!

    - Ég er búin í prófum!!!

    -Ég er að fara austur eftir nákvæmlega 6 tíma...

    Kemur þú ekki annars 17. des eða??

    Anyways hlakka til að sjá þig þá og gangi þér vel í lærdómnum!!!

     
  • At 11:39 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Af hverju finnst mér eins og þú sért að gera grín að mér.

     
  • At 11:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég segi bara... OOOH MY GOOOD stelpa hvað ég gæti ekki verið meira sammála þér!

     

Skrifa ummæli

<< Home