Skoðanir bossans með sjálfstæða viljan

fimmtudagur, mars 09, 2006

Hvað er málið með fæðingu í beinni??

já vona að maður spyr, verið að sýna upp í gönnina á stelpu greyinu í gær, mér fannst það viðbjóður í einu orði sagt VIÐBJÓÐUR!!! Ég er náttlega eins og allir sem mig þekkja mjög klíjugjörn á fæðingar og allt sem heitir sársauki yfirhöfuð, ég t.d. ætla ekki að eignast barn fyrr en ég er búin að finna fyrir mig "keeper", þ.e. einhvern til að unga þessu kríli út fyrir mig...þar sem mér finnst þetta ekki geðslegt, svo gott fólk þið getið rétt ímyndað ykkur hvað mér fannst þetta viðbjóðslegt í gær. Fyrir utan það... hvað er málið með að hafa svona barnaþátt.. Fyrstu Skrefin á "prime-time" í sjónvarpinu, er bara ekki hægt að sjónvarpa þessu á barnaland.is fyrir allar mömmurnar sem hafa ekkert annað að gera en að hanga þar inni, já eða bara þá sem hafa gaman að börnum og vilja skemmta sér yfir því að horfa á fæðingar og annað barnatal.. þetta nær allavega langt út fyrir mitt áhugasvið, það er alveg ljóst!!

Bið að heilsa gott fólk og passið ykkur á börnunum, þau gætu bitið ykkur

Dillibossi Knúdsen

p.s. þetta blogg er í boði Gerber barnamatsins og Pampes bleyja.. góð blanda :o)

8 Comments:

  • At 10:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já þetta var svolítið óhuggulegt, ég sagði nú bara við þá sem að sátu mér næst hvort að það væri ekki bara hægt að panta keisara....áaaaaáaiiiiiiii!

     
  • At 10:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já og þetta var Héraðsstubburinn sem að skrifaði ;)

     
  • At 3:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hvað er málið með að þú hafir horft á þennan þátt?????!!!!

     
  • At 1:00 e.h., Blogger Doppa said…

    Hvað er málið með að við höfum verið að hugsa NÁKVÆMLEGA það sama þegar við sáum brot úr þessum þætti??

     
  • At 6:32 e.h., Blogger Dillibossi Knúdsen said…

    ekki hugmynd Doppa mín, en mér brá að lesa bloggið þitt því það var alveg eins og það sem ég var að enda við að skrifa :o)

     
  • At 10:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Eruði ekki að grínast dömur ? Mér fannst þetta ÆÐISLEGT !!! djöfull hlakka ég til að vinna við þetta allt mitt líf !!! Þetta er sko það BESTA :) Án gríns :) Þetta er það stórkostlegasta sem til er í lífinu ! ( tissjúklútarnir eru í boði mín)

     
  • At 9:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá elsku Díana mín. Ég reyndar skil ekki að fólk deila því með alþjóð þessari reynslu þegar þú ert kanski ekkert sérstaklega kræsileg. Því að mörgu leiti er þetta alger viðbjóður. En á endanum er þetta samt sem betur fer oftast bara það ótrúlegasta og besta sem mann getur ekki ímindað sér fyrr þú prófar það sjálf.
    En djövul skal ég segja i told you so. Þegar þú verður komin með þitt eigin kríli. Þú átt þokkalega eftir að vera ástfangin. Og finnast þitt eigið bara vera það fullkomnasta og besta ever.
    Svo er líka bara hægt að skipta um stööööööð.
    :) Hafðu það gott vinkona

     
  • At 1:07 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Díana þó....hættu nú alveg... Þetta er það besta í heimi ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home